Þetta er tilraunasíða sem er ekki opin almennum notendum.
Notendur utan Landspítlans, sem hafa réttindi til, geta nálgast Heilsugáttina í gegn um Ljórann eða VPN tengingu.
Notendur skulu kynna sér umgengnisreglur kerfisins og fylgja þeim.
Heilsugátt Landspítalans (LSH) veitir meðferðaraðilum aðgang að klínískum upplýsingum úr hinum ýmsu hugbúnaðarkerfum LSH á einum stað. Hönnun Heilsugáttarinnar miðar að því að styðja við klínískt verklag og fækka músasmellum við að nálgast þær upplýsingar sem heilbrigðisstarfsfólk þarf til að geta sem best sinnt sínum sjúklingum. Í Heilsugáttinni hafa, auk aðgengis að upplýsingum úr klínískum kerfum LSH, verið þróaðar ýmsar sérlausnir s.s. HRós svara- og beiðnakerfi fyrir blóðrannsóknir, sjúklingaflokkunar-kerfi, skjáborð fyrir bráðamóttöku og legudeildir/göngudeildir, rannsóknarsvör úr flestum rannsóknarkerfum LSH, almenn innsláttarform, árangursvísar og svo mætti áfram telja.